
Táralind
Opnunartímar
Mán - Fös | 8:30-16 |
Staðsetning
Álfheimar 74, vesturhús
Táralind sérhæfir sig í greiningu og meðferð augnþurrks.
Sigurlaug, augnhjúkrunarfræðingur, tekur á móti þér og gerir allar helstu mælingar sem þarf til að meta ástand augna með tilliti til augnþurrks. Veitir fræðslu, kennir og leggur upp meðferð. Í sérstökum tilfellum vísar áfram á augnlækni sem hefur þá aðgang að öllum myndum og mælingum Táralindar.
Hornsteinar Táralindar eru:
- Alþjóðlegar leiðbeiningar um greiningu og meðferð augnþurrks frá TFOS (Tear Film and Ocular Surface Society).
- Náið samstarf við fyrstu augnlæknastöð Norðurlandanna sem sérhæfir sig greiningu og meðferð augnþurrks, Tørreøyneklinikken í Osló.
Bókaðu tíma í síma 577 1001 eða smelltu á hnappinn til að senda fyrirspurn eða panta símtal.