Um glæsibæ

Glæsibær logo

Glæsilegur kjarni

Glæsibær er verslunarmiðstöð við Álfheima 74 í Reykjavík. Glæsibær var tekinn í notkun í desember árið 1970 og var á þeim tíma stærsta verslunarmiðstöð á Íslandi eða 8300 fermetrar.

Kaupmennirnir Sigurliði Kristjánsson og Valdimar Þórðarson byggðu Glæsibæ en þeir voru þekktir undir nöfnunum Silli og Valdi sem jafnframt var heiti á matvöruverslunum í þeirra eigu. Matvöruverslun Silla og Valda í Glæsibæ þótti afar glæsileg en hún var þúsund fermetrar og þar sáust ýmsar nýjungar sem ekki höfðu sést áður hér á landi, t.d. innkaupavagnar með barnasætum auk þess sem vöruúrval var mikið. Matvöruverslunin í Glæsibæ var rekin undir merkjum Silla til ársins 1974 en þá tók Sláturfélag Suðurlands við rekstri hennar. Síðar hafa matvöruverslanir undir merkjum 10-11 og Iceland verið starfsræktar í Glæsibæ.

Fjöldi annarra verslana hafa verið í Glæsibæ og ein þeirra, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ er eina verslunin sem starfrækt hefur verið í verslunarmiðstöðinni samfellt frá upphafi.

Árið 2002 voru gerðar gagngerar endurbætur á Glæsibæ og verslunarmiðstöðin stækkuð til muna, m.a. með viðbyggingu sem t.d. hýsir nú læknastofur og líkamsræktarstöð auk annarra fyrirtækja. Árið 2006 tók Heilsugæslustöðin í Glæsibæ til starfa en hún þjónar íbúum nærliggjandi hverfa.

Stjórn

Sigurlaug Helga Pétursdóttir

Formaður

[email protected]

Magnús Páll Halldórsson

Gjaldkeri

[email protected]

Kári Tryggvason

Meðstjórnandi

[email protected]

Eignaumsjón

Rekstur húsfélagsins í Glæsibæ

[email protected]